Þó ekki bóli á komu írska lággjaldaflugfélagsins Ryanair til Íslands líður vart dagur án þess að flugfélagið sé að stækka leiðakerfi sitt annars staðar. Í lok mars hyggst Ryanair loks bjóða flug beint frá Kastrup í Kaupmannahöfn til þriggja áfangastaða en með þeirri ákvörðun hafa þeir írsku lent á dönskum vegg.
Ryanair flýgur nú þegar til og frá tveimur áfangastöðum í Danmörku og hefur gert um skeið, Billund og Árósar, en sú ákvörðun að hefja flug frá Kastrup hefur kveikt í öllum helstu verkalýðsfélögum landsins. Ástæðan er lág laun sem flugfélagið þykir borga starfsfólki sínu og úr öllum takti við danska launataxta.
Verkalýðsfélag hefur þegar stefnt flugfélaginu fyrir dómstóla vegna málsins og reynt verður að trufla starfsemi Ryanair á Kastrup þegar flug hefst í lok mars en Írarnir láta sér fátt um finnast. Þeir enda vanir því sams konar mótmæli hafa farið fram á allnokkrum stöðum öðrum gegnum tíðina vegna þess sama.
Ryanair segist fylgja írskum lögum hvað laun varðar og hefur gefið út að laun flugstjóra þeirra á Kastrup verði tæplega 1,6 milljón króna á mánuði. Meðalmánaðarlaun flugþjóna hins vegar öllu lægra eða 313 þúsund krónur fyrir skatt.
Sú upphæð stemmir illa við lágmarkslaun í Danmörku sem eru nú rúmar 2.600 krónur á tímann og því ætla verkalýðsfélög ekki að una. Ætli Ryanair að hafa sérstaka starfsstöð í Danmörku skal félagið greiða lágmarkslaun hið minnsta og helst meira.