Skip to main content
Tíðindi

Allt úr skorðum í Brussel

  26/01/2012desember 23rd, 2014No Comments

Þó ekki sé staf um það að finna á vef eina flugfélagsins sem býður flug héðan til Brussel í Belgíu verða allar almenningssamgöngur í því ágæta landi í lamasessi á mánudaginn kemur.

Er þetta annað verkfallið í landinu á skömmum tíma en þátt taka öll þarlend verkalýðsfélög. Það mun hafa í för með sér að almenningssamgöngur falla að mestu leyti alveg niður þennan dag auk þess sem fjölmörg fyrirtæki verða að loka dyrum sínum.

Þar á meðal er líklegt að kaos verði á flugvöllum landsins og ekki síst í höfuðborginni. Tafir munu verða og aðeins spurning um hversu miklar eða langar.

Þeir farþegar Icelandair sem hugðust brúka þennan dag til að fara til eða koma frá Brussel ættu að hafa þetta í huga.