Skip to main content

H vað sem fólki kann að finnast um kannabis þá er það staðreynd að afurðir þeirrar plöntu verða vinsælli og vinsælli með hverju árinu hvarvetna í heiminum. Það því ósköp eðlilegt að forvitið fólk vilji prófa jónu eða svo á erlendri grundu. En í guðanna bænum ekki prófa kannabis nema vera í fylgd með öðru fólki.

Um sex hundruð „kaffihús“ í Hollandi sérhæfa sig ekki í að reiða fram kaffi 😉 Samsett mynd

Hvort sem þú ert í skíðaferð í Kolóradó, helgarferð í Amsterdam eða elskar að tjilla í Róm eða Madríd þá er auðveldara að finna kannabis en stæði fyrir bílinn. Það er meira að segja auðveldara að fá kannabis í Reykjavík en að finna stæði fyrir bíltíkina.

Margt hefur verið ritað um hvurs lags ófögnuður kannabis sé og leiði neytendur rakleitt til helvítis á fimm mínútum sléttum. Það er þó sáraeinfalt fyrir vitiborið fólk að lesa sér til um að það sé þvæla frá A til Ö. Jákvæðar afleiðingar kannabis eru töluvert fleiri en neikvæðar hliðar.

Að því sögðu skal fara með gát ef fólk sem aldrei hefur reykt jónu langar að prófa. Undir ENGUM kringumstæðum fara ein á „kaffihús“ í Hollandi sem selja ýmsar afurðir þessarar plöntu. Ástæðan sú að fólk sem ekki hefur prófað alvöru kannabis, og alvöru kannabis færðu ekki heima á Íslandi, verða áhrifin af léttustu jónu, mun sterkari en þú getur ímyndað þér.

Hér skal hafa í huga að á „kaffihúsum“ Hollands eru jónur annaðhvort venjulegar og þá gjarnan fylltar með tóbaki að hluta, eða hreinar, sem er þá 100 prósent kannabis. Mismunandi tegundir skipta hundruðum á flestum stöðum en sannarlega ástæða til að spyrja starfsfólk út í styrkleika ef þú ert að prófa í fyrsta sinn.

Einn úr ritstjórn kynnti samferðafélaga fyrir „léttustu“ jónu sem fyrirfannst á einu „kaffihúsa“ Amsterdam fyrir skömmu. Svona kannabis læt. Skipti engum togum að viðkomandi varð helskökk á tíu mínútum sléttum og þurfti feita aðstoð við að komast á hótel til að leggja sig hið snarasta.

Þetta er svona dálítið eins og að taka E. Þær flestar feykisterkarar við fyrstu prófun en fyrir fólk sem hefur gengið gegnum þunnt og þykkt er E bara pilla sem breytir nánast engu.

Sjálfsagt að prófa hlutina á eigin skinni en farið varlega þarna úti 😉